Íslenskt íþróttafólk stóð sig mjög vel um helgina
Um helgina var afar góð helgi hjá íslensku íþróttafólki víðs vegar um heiminn.
Anton Sveinn McKee tók þátt í 200 metra bringusundi í 25 metra laug á Evrópumótinu í Otopeni í Rúmeníu. Hann stóð sig afar vel og hlaut silfurverðlaun eftir að hafa verið í hörkubaráttu um forystuna allt sundið. Hann var aðeins 33/100 úr sekúndu á eftir Caspar Corbeau frá Hollandi þegar hann synti á 2:02,74 sekúndum. Anton Sveinn hefur nú þegar tryggt sér þátttökurétt á Ólympíuleikunum sem fara fram í París á næsta ári.
Snæfríður Sól Jórunnardóttir stóð sig einnig vel er hún synti í 100 metra skriðsund á sama móti á nýju Íslandsmeti. Hún synti á 53,11 sek en gamla metið hennar var 53,19 sek. Snæfríður hafnaði í níunda sæti í sundinu. Hún keppti til úrslita í 200 metra skriðsundi og endaði í sjöunda sæti.
Nánari frétt um íslenska sundfólkið má finna á heimasíðu Sundsambands Íslands.
Eygló Fanndal Sturludóttir tók þátt í heimsbikarmótinu í lyftingum í Katar. Hún sigraði B-hóp, endaði í 11.sæti ásamt því að setja fjögur ný Íslandsmet og jafna Norðurlandamet í snörun og jafnhendingu. Þessi góði árangur styrkir stöðu hennar á úrtökulistanum fyrir Ólympíuleikana sem verða í júlí í París á næsta ári.
Nánari frétt má finna á heimasíðu Lyftingarsambandsins.
Kristín Þórhallsdóttir stóð sig líka vel um helgina þegar hún keppti á Evrópumótinu í klassískum kraftlyftingum. Kristín, sem er núverandi Evrópumethafi í hnébeygju, fékk bronsverðlaun á mótinu fyrir samanlagðan árangur. Hún kemur þó heim með fleiri verðlaun því hún fékk silfur í hnébeygju og brons í bekkpressu. Hún náði ekki að klára síðustu lyftuna sína í réttstöðulyftu og missti af verðlaunum í þeirri grein keppninnar.
Nánari frétt má finna á heimasíðu Kraftlyftingasambandsins.
Myndir voru fengnar af heimasíðum sérsambandanna.
ÍSÍ óskar öllum keppendum til hamingju með flottan árangur um helgina.