Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

16.05.2024 - 16.05.2024

Ársþing FSÍ 2024

Ársþing Fimleikasambands Íslands (FSÍ) verður...
8

Hádegisfyrirlestur HR: Hvaða þættir skipta máli þegar ná þarf sínu besta fram og allt er undir?

30.08.2023

 

Á morgun, fimmtudaginn 31. ágúst, býður Íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík í samvinnu við ÍSÍ upp á hádegisfyrirlesturinn; Performing well at the Olympics: Mental toughness and beyond. Fyrirlesarar verða þeir dr. Daniel Gould og dr. Robert Weinberg og munu þeir fara yfir þá þætti sem skipta máli þegar ná þarf sínu besta fram og allt er undir, auk þess sem þeir fara yfir hversu miklu máli andlegur styrkur skiptir í þessu sambandi.   

Dr. Robert Weinberg er einn helsti sérfræðingur heims í andlegum styrk og mun skoða hversu miklu máli hann skiptir þegar allt er undir. Hann er virtur og afkastamikill fræðimaður á sviði íþróttasálfræði. Hann var sem dæmi tilnefndur sem einn af 10 bestu íþróttasálfræðingum í Norður-Ameríku. Hann hefur birt yfir 150 fræðigreinar, yfir 40 bókakafla og skrifað níu bækur.

Dr. Daniel Gould, prófessor í íþróttasálfræði var í áraraðir ráðgjafi Bandarísku Ólympíunefndarinnar og gerði röð rannsókna um hvað það er sem skilur að þá sem ná sínu besta fram á Ólympíuleikum og þá sem gera það ekki. Dr. Gould er forstöðumaður Institute for the Study of Youth Sports og prófessor í íþróttasálfræði við Michigan State University. Hann hefur verið ráðgjafi fyrir bandarísku ólympíunefndina, bandaríska tennissambandið og fjölda íþróttamanna á öllum aldri og færnistigum. Hann er öflugur vísindamaður og hefur birt fjölmargar vísindagreinar, bókarkafla og skrifað fjölmargar bækur einnig. Líkt og Dr. Weinberg hefur Dr. Gould verið tilnefndur sem einn af 10 bestu íþróttasálfræðingunum í Norður-Ameríku. Daniel Gould er einn af höfundum kennslubókarinnar Foundatoins of Sport and Exercise Psychology.

Fyrirlesturinn verður í stofu M209 í Háskólanum í Reykjavík.  Hann hefst kl. 11:30 og stendur til 12:45.  
Frítt verður inn og er skráning óþörf. 

Athugið að ekki verður boðið upp á streymi.

Hér má finna nánari upplýsingar um fyrirlesturinn.