Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

10.10.2024 - 10.10.2024

Fundur

Fundur verður haldinn í framkvæmdastjórn ÍSÍ...
25.10.2024 - 26.10.2024

Landsþing LH 2024

Ársþing Landssambands hestamannafélaga verður...
01.11.2024 - 30.11.2024

Syndum

Verkefnið Syndum hefst 1. nóvember og stendur...
21.11.2024 - 21.11.2024

Fundur

Fundur verður haldinn í framkvæmdastjórn ÍSÍ...
7

Ólympíusamhjálpin styrkir þjálfara í bogfimi

28.08.2023

 

Valgerður Einarsdóttir Hjaltested hefur fengið styrk frá Ólympíusamhjálpinni til að stunda þjálfaranám á vegum Alþjóðabogfimisambandsins.  Fer námið fram í Lausanne í Sviss og stendur yfir í sex vikur. Allur kostnaður verður greiddur, það er flug, gisting, matur, námsgögn og dagpeningar. Þetta er frábært tækifæri fyrir Valgerði og mikil viðurkenning fyrir það mikla og flotta starf sem unnið er hjá Bogfimisambandinu.  

Ólympíusamhjálpin getur styrkt einn til tvo þjálfara frá hverju landi á ári og þarf þjálfarinn að vera tilnefndur af ólympísku sérsambandi og hafa sótt sér þjálfaramenntun annað hvort í heimalandinu eða hjá viðeigandi alþjóðasambandi. Þjálfarinn þarf að vera virkur í sinni íþróttagrein, hafa praktíska reynslu og hafa metnað til að vinna að þjálfaramenntun og þróun íþróttagreinarinnar. Þrjár námslínur eru í boði:

- Íþróttafræði (Sport science training) - kennslan fer fram í afreksmiðstöðvum eða í ákveðnum íþróttaháskólum.

- Þjálfun íþróttagreinar - (Sport-specific training) - í samráði við alþjóðasamband.

- Klæðskerasniðið námskeið - (Tailor-made training) - Íþróttasamband ákveður staðsetningu og stofnun í samráði við Ólympíusamhjálpina og viðeigandi alþjóðasamband.