Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

25.03.2026 - 25.03.2026

Ársþing LSÍ 2026

Ársþing Lyftingasambands Íslands (LSÍ) verður...
25.03.2026 - 25.03.2026

Ársþing KÍ 2026

Ársþing Klifursambands Íslands (KÍ) verður...
26.03.2026 - 26.03.2026

Ársþing HSK 2026

Ársþing Héraðssambandsins Skarphéðins (HSK)...
21

Fyrsti fundur nýrrar framkvæmdastjórnar ÍSÍ

19.05.2023

 

Fyrsti fundur nýkjörinnar framkvæmdastjórnar ÍSÍ var haldinn þriðjudaginn, 16. maí sl., í höfuðstöðvum ÍSÍ. 
Á fundinum samþykkti stjórnin skipan í embætti framkvæmdastjórnar.
Þórey Edda Elísdóttir verður áfram 1. varaforseti ÍSÍ. Olga Bjarnadóttir verður nýr 2. varaforseti ÍSÍ og Hörður Þorsteinsson nýr gjaldkeri ÍSÍ.
Þau þrjú ásamt forseta ÍSÍ skipa framkvæmdaráð ÍSÍ og er það nú í fyrsta skipti skipað tveimur konum og tveimur körlum.
Á fundinum var einnig skipað nefndir, ráð og vinnuhópa og lagðar fram samþykktir 76. Íþróttaþings ÍSÍ sem fram fór dagana 5. og 6. maí sl.

Meðfylgjandi mynd sýnir frá fundinum.