51. þing ÍBR
30.03.2023
Fimmtudaginn 23. mars fór fram þing ÍBR á Hilton hótelinu við Suðurlandsbraut. Tæplega 70 fulltrúar mættu á þingið sem heppnaðist mjög vel. Sigríður Jónsdóttir, fyrrverandi varaforseti ÍSÍ, var þingforseti og Steinn Halldórsson var varaþingforseti. Hafsteinn Pálsson, 2. varaforseti og Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir, úr framkvæmdastjórn, mættu fyrir hönd ÍSÍ og ávarpaði Kolbrún Hrund þingið.
Kosið var í stjórn ÍBR og bættust ný inn þau Margrét Hafsteinsdóttir og Kristinn Steinn Traustason. Benedikt Ófeigsson kom nýr inn í varastjórn. Ingvar Sverrisson er formaður ÍBR. Þá var sjálfboðaliðum og fyrrum stjórnarmeðlimum veitt heiðursmerki og þeim þökkum góð störf í þágu íþróttanna.
Þinggögn má skoða hér