Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍA 2024

Ársþing Íþróttabandalags Akraness (ÍA) verður...
18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍS 2024

Ársþing Íþróttabandalags Suðurnesja (ÍS)...
16

Heiðranir á héraðsþingi HSK

29.03.2023

 

Fimmtudaginn 23.mars sl. voru hjónin Óskar Pálsson, GHR, og Katrín Aðalbjörnsdóttir, GHR, sæmd Gullmerki ÍSÍ á héraðþingi HSK á Hellu.  Bæði hafa setið í stjórn Golfklúbbs Hellu í 21 ár, frá árinu 2000-2021, Óskar sem formaður og Katrín sem gjaldkeri.  Þá hafa þau hafa um áratugaskeið unnið ötullega að framgangi golfíþróttarinnar í héraði.  Bæði hafa spilað golf með góðum árangri og hefur Óskar að auki verið valinn golfari ársins hjá HSK í þrjú skipti á árnunum 1985-1992.  

Á sama tíma var Gestur Einarsson sæmdur Silfurmerki ÍSÍ fyrir störf sín fyrir íþróttahreyfinguna.  Gestur hefur átt sæti í varastjórn HSK frá árinu 2014.  Hann er í dag formaður kjörnefndar HSK sem og formaður knattspyrnunefndar HSK.  Hann hefur tekið virkan þátt í störfum íþróttahreyfingarinnar og t.d. verið fulltrúi HSK á þingum ÍSÍ og UMFÍ undanfarin ár.  Að auki hefur hann frá barnsaldri starfað mikið með Ungmennafélagi Gnúpverja í sinni heimasveit.  

Það var Gunnar Bragason, gjaldkeri í framkvæmdastjórn ÍSÍ, sem ávarpi þingið og afhenti merkin.  Af þessu tilefni voru teknar myndir og má sjá hjónin Óskar og Katrínu með Gunnari á þeirri fyrri og Gunnar og Gest Einarsson saman á þeirri seinni.

ÍSÍ óskar heiðurshöfunum innilega til hamingju með viðurkenningarnar!

 

Myndir með frétt