Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

29

Fyrsta konan formaður í 50 ára sögu LSÍ

28.03.2023



Síðastliðinn sunnudag 26. mars, fagnaði Lyftingasamband Íslands því að 50 ár eru liðin frá stofnun sambandsins. Helga Hlín Hákonardóttir var kjörin formaður og er hún jafnframt fyrsta konan í sögu sambandsins til að taka við embætti formanns.

Önnur sem kosin voru í stjórn sambandsins voru Magnús Þórðarson sem tekur sæti varaformanns, Erna Héðinsdóttir sem ritari, Harpa Þorláksdóttir sem gjaldkeri og Hrund Scheving og Ásgeir Bjarnason sem meðstjórnendur, en Ásgeir var jafnframt kjörinn formaður tækninefndar. Í varastjórn eru Eggert Ólafsson, Kári Walter, Birkir Örn Jónsson og Gerald Brimir Einarsson. Fulltrúar íþróttamanna í stjórn eru Katla Ketilsdóttir og Árni Rúnar Baldursson.

Eftir hefðbundin þingstörf var undirritaður samningur þess efnis að Lyftingasamband Íslands færðist úr þróunarsambandsflokki C upp í alþjóðlegt samband B, innan raða ÍSÍ en það voru fráfarandi formaður LSÍ, Magnús Þórðarson, og nýkjörinn formaður, Helga Hlín, sem skrifuðu undir hann ásamt framkvæmdastjóra ÍSÍ, Andra Stefánssyni og 2. varaforseta ÍSÍ, Hafsteini Pálssyni.

Lyftingasambandið gerði einnig sjö einstaklinga að heiðursfélögum en allir eiga það sameiginlegt að hafa átt veglegt framlag til framgangs ólympískra lyftinga á Íslandi. Sjá meðfylgjandi mynd af þeim sem voru heiðraðir, frá vinstri eru Guðmundur Sigurðsson, Birgir Þór Borgþórsson, Guðmundur Helgi Helgason, Gísli Kristjánsson, Hrönn Svansdóttir, Anna Hulda Ólafsdóttir og Þuríður Erla Helgadóttir.

Á stærri myndinni má sjá nýja stjórn Lyftingasambandsins.

Myndir með frétt