Reykjavíkurleikarnir 2023 og ráðstefnan „Íþróttir 2023”
Ráðstefnan „ÍÞRÓTTIR 2023” hófst í dag, 1.febrúar, og stendur yfir í dag og á morgun í Háskólanum í Reykjavík. Að ráðstefnunni standa Íþróttabandalag Reykjavíkur, Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Ungmennafélag Íslands, Háskólinn í Reykjavík og RIG – Reykjavík International Games. Andri Stefánsson, framkvæmdastjóri ÍSÍ, opnaði ráðstefnuna.
Ráðstefnan verður þrískipt og mun dagurinn í dag fjalla um þjálfun afreksíþróttafólks. Morgundeginum verður skipt í umfjöllun um íþróttir barna og ungmenna annars vegar og stjórnun íþróttafélaga hins vegar. Fjölmargir spennandi fyrirlestrar verða á ráðstefnunni. Meðal fyrirlesara verða Elísabet Gunnarsdóttir, þjálfari knattspyrnuliðs Kristianstad í Svíþjóð, Vésteinn Hafsteinsson, fyrrum afreksíþróttamaður í frjálsum íþróttum, þjálfari hjá sænsku Ólympíunefndinni og nýráðinn afreksstjóri ÍSÍ, Else-Marthe Sørlie Lybekk, fyrrum handknattleikskona frá Noregi, og fleiri sérfræðingar.
Dagskrá ráðstefnunnar, upplýsingar um fyrirlesara ásamt öðrum upplýsingum og streymi má finna hér: https://www.rig.is/dagskra2023
Seinni hluti Reykjavíkurleikanna hófst einnig í dag en keppt er í fjölda greina og má finna grófa dagskrá hér, https://www.rig.is/dagskra-2023. Þá má einnig finna upplýsingar um lausa miða og streymi.
Á facebook síðu Reykjavíkurleikanna má einnig finna nánari fréttir og upplýsingar um keppnina, https://www.facebook.com/reykjavik.international.games