Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

05.12.2024 - 05.12.2024

Fundur

Fundur verður haldinn í framkvæmdastjórn ÍSÍ...
22

13 þátttakandur á ráðstefnu í Finnlandi

14.11.2022

 

Yfir hundrað sérfræðingar í íþróttum barna og ungmenna frá öllum Norðurlöndunum hittust á ráðstefnu í Helsinki dagana 4. - 6. nóvember síðastliðinn.

Ísland átti 13 þátttakendur þátttakendur, sem komu frá 6 sérsamböndum; HSÍ, ÍSS, ÍHÍ, TSÍ, FSÍ og DSÍ. Einnig voru tveir fulltrúar frá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands. Þessi samnorræna ráðstefna er haldin á þriggja ára fresti og verður Ísland gestgjafi árið 2025. Markmið ráðstefnunnar er:

  • Að stuðla að þverfaglegri samvinnu milli Norðurlandanna í íþróttum barna og ungmenna.
  • Deila hugmyndum, upplýsingum og þekkingu.
  • Hagnýt viðmið (Benchmarking).
  • Hvetja til samvinnu á milli sérsambanda Norðurlandanna.

Aðalfyrirlesari ráðstefnunnar var André Lachance sérfræðingur frá Kanada sem hefur meðal annars komið til Íslands og haldið erindi á ráðstefnu Sýnum Karakter.

Meðal umfjöllunar á ráðstefnunni var hvernig megi aðlaga keppni á fjölbreyttari hátt til að keppni endurspegli betur þá þætti sem verið er að þjálfa á ákveðnum aldursbilum. Einnig var fjallað um mikilvægi þjálfara, hlutverk foreldra og sjálfbærni í íþróttum. 

Þátttakendur koma heim með margar nýjar hugmyndir í farteskinu ásamt nýju og endurbættu tengslaneti.

Ísland tók við keflinu við lok ráðstefnunnar og mun stýra undirbúningi fyrir næstu ráðstefnu sem haldin verður á Íslandi árið 2025 .