„Félagið er himinlifandi með viðurkenningunaˮ
Körfuknattleiksfélag Selfoss fékk endurnýjun viðurkenningar félagsins sem Fyrirmyndarfélag ÍSÍ í Íþróttahúsi Vallaskóla föstudaginn 30. september síðastliðinn. Það var Hafsteinn Pálsson 2. varaforseti ÍSÍ sem afhenti Gylfa Þorkelssyni formanni félagsins viðurkenninguna í hálfleik á leik karlaliðs Selfoss við Hrunamenn en þetta var fyrsti heimaleikur liðsins þetta keppnistímabil. Uppfærð gæðahandbók og frekari gögn er varða viðurkenninguna má finna á heimasíðu félagsins https://www.selfosskarfa.is/ Á myndunum eru annars vegar frá vinstri þeir Hafsteinn og Gylfi og hins vegar ungir iðkendur félagsins sem halda á fána Fyrirmyndarfélaga, þeir Baltasar, Elvar Atli, Loftur Breki og Stefán Karl. Myndirnar tók Björgvin Rúnar Valentínusson.
„Þetta er hollt og nauðsynlegt að gera reglulega en hætt er við því í amstri dagsins að það dragist úr hömlu ef ekki væri fyrir þetta formlega ferli sem ÍSÍ hefur af framsýni rammað inn fyrir félögin í landinuˮ sagði Gylfi Þorkelsson formaður Körfuknattleiksfélags Selfoss af þessu tilefni.