Alþjóða Ólympíudagurinn er haldinn hátíðlegur um allan heim í dag 23. júní
![](/library/Myndir/Frettamyndir/Fraedslusvid/%c3%93lymp%c3%adudagurinn%202.jpg?proc=400x400)
Alþjóða Ólympíudagurinn er haldinn hátíðlegur um allan heim í dag 23. júní, á stofndegi Alþjóðaólympíunefndarinnar (IOC). Af því tilefni bauðst unglingum úr vinnuskóla Mosfellsbæjar að taka þátt í íþróttum og leikjum á íþróttasvæðinu við Varmá í Mosfellsbæ. Starfsfólk ÍSÍ og UMSK stýrðu dagskránni og fengu um 200 ungmenni að spreyta sig í knattspyrnu, spjótskutlukasti, ringó, fötufótbolta, sirkus, hringjakasti og skotfimi. Deginum lauk svo með pylsuveislu. Krakkarnir voru virk og virtust skemmta sér vel.
ÍSÍ þakkar UMSK, Aftureldingu og verkstjórum Vinnuskólans í Mosfellsbæ kærlega fyrir samstarfið og virkilega ánægjulegan Ólympíudag.