Aðalfundur ENGSO í Þórshöfn í Færeyjum
Á dögunum tóku þær Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir úr framkvæmdastjórn ÍSÍ og Ragnhildur Skúladóttir sviðstjóri Þróunar-og fræðslusviðs þátt í aðalfundi ENGSO (European Non-Governmental Sports Organization) í Þórshöfn í Færeyjum. Auk venjulegra aðalfundarstarfa fór fram fræðsluhluti sem innihélt fyrirlestra og vinnustofur.
Fjögur ólík umræðuefni voru á dagskrá sem voru: Kynning á starfsemi og góðum starfsháttum sem íþróttahreyfingin innleiddi eftir Covid-19, jafnrétti í íþróttum með sérstakri áherslu á LGBTQI+ samfélagið, kynning á ólíkum verkefnum eins og "HealthyLifestyle4all“ og SPIRIT, vinnustofur um geðheilbrigði og æskulýðsmál og evrópska íþróttamódelið.
Á heimasíðu ENGSO er að finna mikið magn af fræðsluefni fyrir þjálfara sem er ókeypis og aðgengilegt fyrir alla.