Viljayfirlýsing um þjóðarhöll í innanhússíþróttum í Laugardal
Í dag, föstudaginn 6. maí, undirrituðu Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Ásmundur Einar Daðason mennta- og barnamálaráðherra og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri viljayfirlýsingu um framkvæmdir við byggingu þjóðarhallar í innanhússíþróttum í Laugardal. Það eru frábær tíðindi fyrir íþróttahreyfinguna að þetta stóra og aðkallandi hagsmunamál sé nú komið á gott skrið.
Þjóðarhöllin mun uppfylla kröfur fyrir alþjóðlega keppni í innanhússíþróttagreinum og stórbæta íþróttaaðstöðu fyrir skóla og íþróttafélög í Laugardal. Í yfirlýsingunni kemur fram að ríki og Reykjavíkurborg muni tryggja fjármögnun á stofnkostnaði í langtímaáætlunum sínum. Kostnaðarmat muni liggja fyrir eftir frumathugun og endanlega hönnun. Kostnaðarskipting taki mið af nýtingu mannvirkisins sem og þeim kröfum sem hvor aðili hefur, annars vegar ríkið vegna þarfa sérsambanda og alþjóðlegra krafna til keppnisaðstöðu landsliða og hins vegar Reykjavíkurborg vegna þarfa íþróttafélaga og íþróttakennslu.
Aðilar munu stofna sérstaka framkvæmdanefnd um þjóðarhöll í innanhússíþróttum sem mun sjá um frumathugun og undirbúning á fyrirkomulagi byggingaframkvæmda, s.s. vegna hönnunar, tæknilegrar útfærslu, rekstrarforms og hvernig staðið verður að fjármögnun. Notkunarmöguleikar mannvirkisins verða kannaðir til hlítar. Einnig kemur fram að ríki og borg ætli að standa saman að hugmyndasamkeppni um hönnun mannvirkisins og útlit.
Stefnt skal að því að öllum framkvæmdum verði lokið árið 2025.