Úthlutun ríkisstyrks til sérsambanda ÍSÍ
04.03.2022
Framkvæmdastjórn ÍSÍ samþykkti á fundi sínum í gær, 3. mars, tillögur fjármálaráðs ÍSÍ um úthlutun ríkisstyrks til sérsambanda ÍSÍ sbr. hér neðar. Framlag á fjárlögum 2022 er 99,0 m.kr. sem er tveggja milljón króna hækkun frá árinu 2021. Áhersla með styrknum er sem fyrr að vinna að því grundvallaráhersluatriði sem sett var í upphafi að hvert sérsamband fengi til framtíðar framlag til að standa undir nauðsynlegri þjónustu við sambandsaðila með rekstri eigin skrifstofu. Styrkirnir eru greiddir út í þrennu lagi. Fyrsta greiðsla 30. mars n.k., önnur greiðsla 30. júlí n.k. og lokagreiðsla 30. nóvember. Lokagreiðslan er háð skilum á fjárhagslegu uppgjöri og greinargerð um nýtingu styrksins.
Sérsamband | Upphæð | |||
Akstursíþróttasamband Íslands | 2.750.000 | |||
Badmintonsamband Íslands | 3.140.000 | |||
Blaksamband Íslands | 3.140.000 | |||
Bogfimisamband Íslands | 2.750.000 | |||
Borðtennissamband Íslands | 2.750.000 | |||
Dansíþróttasamband Íslands | 3.140.000 | |||
Fimleikasamband Íslands | 3.420.000 | |||
Frjálsíþróttasamband Íslands | 3.420.000 | |||
Glímusamband Íslands | 1.700.000 | |||
Golfsamband Íslands | 3.420.000 | |||
Handknattleikssamband Íslands | 3.420.000 | |||
Hjólreiðasamband Íslands | 2.750.000 | |||
Hnefaleikasamband Íslands | 2.750.000 | |||
Íshokkísamband Íslands | 3.140.000 | |||
Íþróttasamband fatlaðra | 2.000.000 | |||
Júdósamband Íslands | 2.950.000 | |||
Karatesamband Íslands | 2.950.000 | |||
Keilusamband Íslands | 2.750.000 | |||
Klifursamband Íslands | 1.550.000 | |||
Knattspyrnusamband Íslands | 3.420.000 | |||
Kraftlyftingasamband Íslands | 2.750.000 | |||
Körfuknattleikssamband Íslands | 3.420.000 | |||
Landssamband hestamannafélaga | 3.420.000 | |||
Lyftingasamband Íslands | 2.750.000 | |||
Mótorhjóla- og snjósleðasamband Íslands | 2.750.000 | |||
Siglingasamband Íslands | 2.750.000 | |||
Skautasamband Íslands | 2.950.000 | |||
Skíðasamband Íslands | 3.140.000 | |||
Skotíþróttasamband Íslands | 3.140.000 | |||
Skylmingasamband Íslands | 2.750.000 | |||
Sundsamband Íslands | 3.420.000 | |||
Taekwondosamband Íslands | 2.950.000 | |||
Tennissamband Íslands | 2.750.000 | |||
Þríþrautarsamband Íslands | 2.750.000 |