Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

05.12.2024 - 05.12.2024

Fundur

Fundur verður haldinn í framkvæmdastjórn ÍSÍ...
22

Peking 2022 / Keppnisdagur hjá Snorra Einarssyni

18.02.2022

 

Snorri Einarsson mun keppa í 50 km skíðagöngu í fyrramálið, 19. febrúar klukkan 06:00 að íslenskum tíma.

Þetta er seinasta greinin hans á leikunum og er hann jafnframt seinasti íslenski keppandinn til að keppa á Vetrarólympíuleikunum í ár.

Þessir leikar hafa verið ansi annasamir hjá Snorra.

Fyrsta grein Snorra á þessum Vetrarólympíuleikum var 30 kílómetra skiptiganga. Snorri varð í 29. sæti sem er besti árangur íslensks keppanda í skíðagöngu á Ólympíuleikum.

Því næst var 15 kílómetra skíðaganga hjá Snorra. Hann var ellefti í rásröðinni og hafnaði þar í 36. sæti af 99 keppendum.

Snorri og Isak Stianson Pedersen tóku svo þátt í undankeppni liðakeppninnar í sprettgöngu. Fjögur efstu liðin í hvorum riðli komust áfram og þar sem Snorri og Isak voru í 10. sæti í sínum riðli þá lauk þeirra liðakeppni þarna. Tíminn þeirra skilaði þeim 19. sæti.



Mynd: Anoc Olympic / Will Lucas / Inovafoto