Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

28

Framlag Íslendinga vakti athygli

25.11.2021

Special Olympics Iceland og Íþróttasamband fatlaðra taka þátt í þriggja ára verkefni 2021 – 2023 og gengur verkefnið undir heitinu Inclusion through sport of children with intellectual disabilities sem styrkt er af EEA & Norway Grant. Markmið verkefnisins er að vekja athygli og vinna að því að öll börn fái jöfn tækifæri til þátttöku í íþróttastarfi, þar gegna þjálfarar lykilhlutverki. Eitt af verkefnum Íslands var að standa að þjálfararáðstefnu á Íslandi árið 2021 en vegna aðstæðna var þjálfararáðstefnan haldin rafrænt og fór fram nú í vikunni. Innlegg íslensku fulltrúanna vakti mikla athygli og fékk jákvæð viðbrögð frá fulltrúum samstarfslandanna sem fylgdust með ráðstefnunni. Eftirfarandi erindi voru kynnt:

  • Kristinn Jónasson, körfuboltaþjálfari hjá Special Olympics liði Hauka í Hafnarfirði var með innlegg um aðkomu að starfi Special Olympics á Íslandi, uppbyggingu körfuboltaliðsins og sérhæfð ráð og ábendingar um þjálfun.
  • Bára Fanney Hálfdánardóttir, þjálfari hjá Haukum er sálfræðingur hjá Greiningarstöð ríkisins og hennar innlegg var um gildi íþrótta út frá ýmsum áhugaverðum þáttum, s.s. líðan, uppbyggingu sjálfstrausts og gildi þess að halda áfram þó verkefni séu erfið.
  • Sólný Pálsdóttir, móðir drengs með Downs heilkenni sagði frá syni sínum og mikilvægi þess að eiga bróður á svipuðum aldri, samvinnu þeirra og ótrúlegum árangri.
  • Hjördís Baldursdóttir og Hámundur Helgason, verkefnastjórar hjá Keflavík og UMFN sögðu frá nýju samstarfsverkefni félaganna sem byggir á íþróttatilboði fyrir börn með stuðningsþarfir.

 

Samstarfslönd í verkefninu eru Rúmenía, Slóvakía, Litháen, Bosnía Herzegovina og Svartfjallaland en skrifstofa Special Olympics í Evrópu kemur einnig að verkefninu. Sjá nánar á heimasíðu ÍF