Hvar er hægt að fara í hraðpróf?
Á vef heilbrigðisráðuneytis er vakin athygli á að heilbrigðisstofnanir um allt land bjóða upp á hraðpróf vegna COVID-19. Í Reykjavík er hægt að fara í sýnatöku á vegum heilsugæslunnar við Suðurlandsbraut. Auk þess að veita einkaaðilar þessa þjónustu í Reykjanesbæ, á Akureyri og á fjórum stöðum í Reykjavík. Hraðpróf eru notendum að kostnaðarlausu.
Á vefslóðinni https://hradprof.covid.is/skraning/ er hægt að bóka tíma í hraðpróf hjá heilbrigðisstofnunum hvar sem er á landinu.
Hraðprófsstaðir:
- Heilbrigðisstofnanir í öllum heilbrigðisumdæmum (upplýsingar um staðfestingu og opnunartíma eru vef hverrar stofnunar).
- Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins við Suðurlandsbraut 34.
- BSÍ í Reykjavík.
- Harpa í Reykjavík.
- Kringlan í Reykjavík.
- Kleppsmýrarvegi í Reykjavík.
- Aðalgötu 60 í Reykjanesbæ.
- Við Háskólann á Akureyri (Borgir við Norðurslóð)
Nánari upplýsingar um sýnatökur, tímabókanir og staðsetningu sýnatökustaða á vegum heilbrigðisstofnana um allt land á vef embættis landlæknis. Þess ber að geta að hraðpróf og heimapróf er ekki það sama og á viðburðum þar sem fleiri en 50 koma saman þarf að sýna neikvæða niðurstöðu úr hraðprófi frá einum af ofangreindum stöðum.