Yfirlýsing frá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands og Knattspyrnusambandi Íslands
Stjórn Knattspyrnusambands Íslands (KSÍ) hefur farið þess á leit við Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ), sem eftirlitsaðili með sérsamböndum, að ÍSÍ setji á stofn nefnd til að gera úttekt á viðbrögðum og málsmeðferð KSÍ vegna kynferðisofbeldismála sem tengst hafa leikmönnum í landsliðum Íslands.
Nú hefur sú nefnd verið skipuð og í henni eiga sæti Dr. Hafrún Kristjánsdóttir, sálfræðingur, Kjartan Bjarni Björgvinsson, héraðsdómari, sem jafnframt er formaður nefndarinnar og Rán Ingvarsdóttir, lögfræðingur. Úttektarnefnd ÍSÍ er sjálfstæð og óháð í störfum sínum. KSÍ ábyrgist að nefndin fái aðgang að öllum þeim gögnum sem það hefur með höndum.Nefndinni er ætlað að skoða eftirfarandi:
- Fara yfir þá atburðarás sem leiddi til afsagnar formanns og fyrirhugaðrar afsagnar stjórnar KSÍ í september 2021 ásamt því að bregðast við ásökunum sem fram hafa komið m.a. um þöggun innan KSÍ.
-
Staðreyna eins og kostur er hvaða vitneskja hafi verið innan stjórnar og / eða starfsmanna KSÍ um að leikmenn landsliða eða aðrir sem starfa fyrir KSÍ hafi beitt kynbundnu eða kynferðislegu ofbeldi á árunum 2010 – 2021.
-
Lýsa því hvernig eftirliti og viðbrögðum við slíkum atvikum var háttað innan KSÍ á fyrrgreindu tímabili.
-
Taka til athugunar hvort einhverjar þær aðstæður séu uppi innan KSÍ sem hamla þátttöku kvenna í starfi þess. Þetta er gert í tengslum við fullyrðingar sem fram hafa komið í opinberri umræðu um að KSÍ sé karllægt og fráhrindandi fyrir konur. Í því sambandi verður skoðað hvort skipulag KSÍ eða aðrir þættir í starfseminni séu hamlandi fyrir þátttöku kvenna í starfinu.
- Leggja grunn að tillögum um úrbætur á verklagi eða um frekari viðbrögð.
Úttektarnefnd ÍSÍ hefur störf nú þegar og er ætlað að ljúka störfum eigi síðar en í nóvember nk. Nefndin mun skila niðurstöðum af sér til framkvæmdastjórnar ÍSÍ. Hægt er að koma upplýsingum á framfæri til nefndarinnar á netfangið uttektarnefnd@isi.is
Nánari upplýsingar veitir Andri Stefánsson hjá ÍSÍ.
Á myndinni eru frá vinstri: Hafrún Kristjánsdóttir, Rán Ingvarsdóttir, Kjartan Bjarni Björgvinsson, Lárus L. Blöndal forseti ÍSÍ, Gísli Gíslason varaformaður KSÍ