Gildandi samkomutakmarkanir innanlands framlengdar
![](/library/Skrar/Um-iSi/Covid-19-og-ithrottahreyfingin/%c3%8d%c3%ber%c3%b3ttahreyfingin%20og%20covid.jpg?proc=400x400)
Heilbrigðisráðherra ákvað, í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis, að framlengja gildandi samkomutakmarkanir innanlands um tvær vikur, þ.e. til og með 27. ágúst. Er þetta gert með hliðsjón af fjölda smita í samfélaginu.
Engar breytingar eru því á áður settum takmörkunum á samkomum er lúta að íþróttastarfi næstu tvær vikurnar eða til og með 27. ágúst.
Reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar nr. 878/2021.
Reglugerð um breytingu á reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar nr. 878/2021.