Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

29

Aflétting allra samkomutakmarkana

25.06.2021

Þær ánægjulegu fréttir voru að berast að Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að frá og með 26. júní næstkomandi falli úr gildi allar takmarkanir á samkomum innanlands. Í þessu felst meðal annars fullt afnám grímuskyldu, nándarreglu og fjöldatakmarkana. Ákvörðun um afléttingu allra samkomutakmarkana er í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis. Þann 1. júlí taka einnig gildi breyttar reglur varðandi sýnatökur á landamærum.
Þetta eru sannarlega stór tíðindi fyrir alla á Íslandi og íþróttahreyfinguna þar með. Síðastliðið ár hefur fært okkur miklar áskoranir og hindranir en með sameiginlegu átaki hefur tekist að komast fyrir vind.

Svandís Svavarsdóttir: „Í raun erum við að endurheimta á ný það samfélag sem okkur er eðlilegt að búa í og sem við höfum þráð, allt frá því að heimildir sóttvarnalaga til að takmarka samkomur voru virkjaðar vegna heimsfaraldurs fyrir rúmu ári, þann 16. mars 2020“

Lárus L. Blöndal forseti ÍSÍ: „Þó framtíðin geti borið með sér sambærilegar nýjar áskoranir þá er gott að geta fagnað þessum stóra áfanga núna og notið þess að geta á ný haldið úti sama kröftuga íþróttastarfinu í landinu, án takmarkana. Ég er afar þakklátur fyrir það mikla starf sem leiðtogar, starfsfólk og sjálfboðaliðar í hreyfingunni hafa lagt á sig til að halda úti íþróttastarfsemi í landinu undir krefjandi skilyrðum vegna kórónuveirufaraldursins og ekki síður er ég þakklátur heilbrigðis- og sóttvarnayfirvöldum fyrir frábæra stjórn á aðstæðum allan tímann sem þetta ástand hefur varað. Eins hefur verið ómetanlegur skilningur stjórnvalda á aðstæðum íþróttahreyfingarinnar og eru við afar þakklát fyrir þann mikla fjárhagslega stuðning sem yfirvöld hafa veitt til hreyfingarinnar. Samstarf íþróttahreyfingarinnar, almannavarna og heilbrigðis- og sóttvarnayfirvalda hefur verið afar náið og gott í gegnum allt þetta ferli og fyrir það erum við einnig þakklát. Nú skulum við öll njóta þess frelsis sem afléttingarnar gefa okkur en þó með viðeigandi varkárni í ljósi þess að við vitum öll að veiran er á kreiki og getur enn gert okkur lífið leitt þó við vonum öll og trúum að það versta sé vel að baki. Nú getum við sett endurnýjaða orku í að efla íþróttastarfið enn frekar og endurheimta þá stöðu sem íþróttahreyfingin var komin í fyrir faraldurinn. Ég er mjög bjartsýnn á að það takist enda leitun að öðrum eins eldhugum og þeim sem knýja áfram íþróttastarfið í landinu.“

Hér er tengill inn á heimasíðu heilbrigðisráðuneytisins þar sem finna má minnisblöð vegna afléttinganna og reglna á landamærum.