Skemmtileg lottó auglýsing
27.10.2020
Á dögunum birtist skemmtileg auglýsing frá þar sem börn fara með hlutverk íslensks íþróttafólks og segja frá sínum háleitu markmiðum. Auglýsinguna má sjá hér neðst í fréttinni.
Hluti af andvirði allrar sölu Getspár rennur beint til uppbyggingar og starfsemi æskulýðs- og íþróttamála og til málefna öryrkja. Með þátttöku í leikjum á vegum Getspár eru þátttakendur að styrkja nauðsynleg samfélagsleg málefni og leggja traustan grunn að áframhaldandi uppbyggingu þeirra. Í starfsemi Getspár gilda því ekki sömu sjónarmið og í hefðbundnum atvinnurekstri heldur er markmiðið að nýta þessa fjármuni í þágu góðra málefna.
ÍSÍ hvetur fólk til þess að styðja íþróttamál með þátttöku í lottó.