Fréttatilkynning frá almannavarnanefnd höfuðborgarsvæðisins
19.10.2020
Almannavarnanefnd höfuðborgarsvæðisins hefur gefið út fréttatilkynningu sem segir að skóla- og íþróttasvið allra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu hafi tekið ákvörðun um að öll íþróttakennsla fari fram utandyra og að allt skólasund muni falla niður. Jafnframt verða öll íþróttamannvirki og sundlaugar á vegum sveitarfélaganna lokuð. Ákvörðunin verður endurskoðuð að viku liðinni í takt við álit sóttvarnalæknis.
Fréttatilkynninguna má lesa í heild sinni hér.