Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

29

Ólympíuhlaup ÍSÍ - Þrír skólar fá 100.000 kr. inneign í Altis

12.10.2020

Ólympíuhlaup ÍSÍ var að þessu sinni formlega sett í Grunnskóla Grundarfjarðar þann 8. september sl. Með hlaupinu er leitast við að hvetja nemendur í grunnskólum landsins til þess að hreyfa sig reglulega og stuðla þannig að betri heilsu og vellíðan. Nemendur geta nú eins og áður valið um þrjár vegalengdir, þ.e. 2,5 km, 5 km og 10 km. Hver skóli sem tekur þátt í Ólympíuhlaupi ÍSÍ fær viðurkenningu þar sem fram kemur hversu margir nemendur tóku þátt og heildarfjöldi kílómetra sem nemendur lögðu að baki. Þátttakan í ár er mjög góð, en nú þegar hafa 76 skólar skilað inn niðurstöðum og hafa 16.521 nemendur hlaupið 67.178 kílómetra.

Í ár eins og undanfarin ár voru þrír skólar dregnir út sem hafa lokið hlaupinu og skilað inn upplýsingum til ÍSÍ. Skólarnir 76 sem skilað hafa inn niðurstöðum voru með í pottinum í ár, en þeir þrír skólar sem voru dregnir út eru Grunnskóli Snæfellsbæjar, Foldaskóli í Reykjavík og Sunnulækjarskóli á Selfossi. Hver þessara þriggja skóla fær 100.000 króna inneign í Altis, en Altis selur vörur til íþróttaiðkunar sem nýtast nemendum á skólalóðinni eða í íþróttahúsinu.

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands þakkar öllum þeim skólum sem tóku þátt kærlega fyrir þátttökuna, en bendir jafnframt á að enn er hægt að hlaupa og fá viðurkenningarskjal þó að búið sé að draga út vinningana.

Samstarfsaðilar Ólympíuhlaups ÍSÍ eru Mjólkursamsala sem hefur styrkt útgáfu viðurkenningarskjala frá upphafi, og Íþrótta- og heilsufræðingafélag Íslands.