Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.04.2025 - 26.04.2025

Ársþing ÍF 2025

Ársþing Íþróttasambands fatlaðra (ÍF) verður...
10

Ársþing UDN

19.06.2020

99. ársþing Ungmennasambands Dalamanna og Norður-Breiðfirðinga (UDN) var haldið 8. júní sl. í félagsheimilinu Staðarfelli. Líney Rut Halldórsdóttir framkvæmdastjóri ÍSÍ sótti þingið fyrir hönd ÍSÍ og flutti kveðjur Lárusar L. Blöndal forseta ÍSÍ, framkvæmdastjórnar og starfsfólks ÍSÍ.

Stjórnun þings var í höndum Sveins Gestssonar og gekk þingið vel. Breyting varð á stjórn en Kolfinna Ýr Ingólfsdóttir kom inn sem meðstjórnandi og Rúna Blöndal sem gjaldkeri. Fyrir í stjórn eru Sindri Geir Sigurðsson ritari, Jóhanna Sigrún Árnadóttir meðstjórnandi og Heiðrún Sandra Grettisdóttir formaður.