UMFÍ frestar tveimur mótum
![](/library/Myndir/Frettamyndir/49122070781_7df866e7f7_c.jpg?proc=400x400)
Stjórn Ungmennafélags Íslands (UMFÍ) hefur ákveðið að fresta Landsmóti UMFÍ 50+ og Íþróttaveislu UMFÍ sem halda átti í júní í sumar. Nýjar dagsetningar verða tilkynntar um leið og þær liggja fyrir á vefsíðu UMFÍ, www.umfi.is. Unglingalandsmót UMFÍ er hins vegar enn á dagskrá og fer fram á Selfossi um verslunarmannahelgina.