Æfing hugans - Ólympíustöðin
Á Ólympíustöðinni og í smáforriti Ólympíustöðvarinnar má nú finna ráðleggingar frá Ólympíuförum um markmiðasetningu, núvitund, ímyndunarþjálfun og fleira sem allir geta nýtt sér. Afreksíþróttafólk og Ólympíufarar deila sinni reynslu, t.d. um það hvernig yfirstíga á pressu, í myndböndum, viðtölum, greinum o.fl.
Hér má finna myndböndin: Olympic State of Mind!
Ólympíustöðin er ókeypis vettvangur sem sýnir beint frá íþróttaviðburðum, er með nýjustu fréttir og býður upp á útsendingar tileinkaða íþróttum og íþróttamönnum allt árið um kring. Stöðin leggur áherslu á afreksíþróttamenn og þeirra leið að meiri árangri. Á Ólympíustöðinni geta notendur upplifað kraft íþróttanna og Ólympíuhreyfingarinnar allt árið, hvar sem er og hvenær sem er. Hægt er að horfa á Ólympíustöðina á vefsíðu Olympic Channel. Íþróttamenn og aðdáendur geta einnig fylgt Ólympíustöðinni á samfélagsmiðlasíðum hennar, Facebook, Instagram, Twitter og YouTube.