Lausanne 2020 - þriðja keppnisdegi lokið
![](/library/Myndir/Afreks--og-olympiusvid/Logo/Lausanne.jpg?proc=400x400)
Þá er þriðja keppnisdegi lokið á Vetrarólympíuleikum ungmenna. Aðalbjörg Lillý Hauksdóttir tók þátt í stórsvigskeppni stúlkna. Því miður hlekktist henni á í fyrri umferð og féll hún úr leik. Alls tóku 78 stúlkur þátt í keppninni en einungis 37 þeirra náðu að klára báðar ferðirnar. Sigurvegari í risasvigi stúlkna varð Amelie Klopfenstein frá Sviss, í öðru sæti varð finnska stúlkan Rosa Pohjolainen og í þriðja sætinu varð Amanda Salzbeger frá Austurríki.
Á morgun mánudag fer fram keppni í stórsvigi drengja. Þar er Gauti Guðmundsson með rásnúmer 56 af 77 keppendum.