Íþróttafólk sérsambanda heiðrað
Í kvöld fór fram afhending viðurkenninga til íþróttafólks sérsambanda og íþróttanefnda ÍSÍ 2019 í Silfurbergi í Hörpu.
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands veitir viðurkenningar til íþróttamanna og íþróttakvenna sérsambanda ár hvert á sameiginlegu hófi ÍSÍ og Samtaka íþróttafréttamanna í tengslum við kjör á Íþróttamanni ársins.
Íþróttafólkið fékk afhenta veglega verðlaunagripi sem Ólympíufjölskylda ÍSÍ gefur, en það eru fyrirtækin Arion banki, Icelandair, Sjóva, Toyota og Valitor sem mynda Ólympíufjölskyldu ÍSÍ.
Hér á vefsíðu ÍSÍ má sjá Íþróttafólk sérsambanda ÍSÍ 2019.
ÍSÍ óskar afreksfólki sérsambanda og íþróttanefnda ÍSÍ innilega til hamingju með frábæran árangur á árinu 2019 og allra heilla á næsta ári. ÍSÍ vill einnig þakka fyrirtækjunum sem mynda Ólympíufjölskyldu ÍSÍ og fulltrúum þeirra fyrir allan þeirra stuðning.
Hægt er að fylgjast með hátíðinni á Instagram síðu ÍSÍ, @isiiceland, #Íþróttamaðurársins2019