Söguvefur ÍBR
![](/library/Myndir/Frettamyndir/Sambandsadilar/cbf989c3-9b39-4892-93e7-a91b16ae4801_%c3%9evottalaugarnar+i%cc%81+Laugardal+2.jpg?proc=400x400)
Íþróttabandalag Reykjavíkur varð 75 ára 31.ágúst 2019. Í tilefni af afmælinu var ákveðið að fara í gerð söguvefs. Sagnfræðingurinn Stefán Pálsson var fenginn til að taka saman efni til að setja á tímaás um sögu íþróttanna í Reykjavík. Tímaásinn spannar tímabilið frá 1824 þegar fyrsti vísir að nútímaíþróttum hefst um leið og þéttbýlismyndun á Íslandi og til dagsins í dag. Stuttur texti um helstu stórviðburði íþróttanna á þessu tímabili er á ásnum ásamt myndum. Sérfræðingar hjá Kodo sáu um hönnun og uppsetningu á vefnum. Vefurinn var kynntur á hófi Íþróttafólks Reykjavíkur sem fram fór í gær í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur.
Söguvefur - Saga íþrótta í Reykjavík