Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

28

Dagur í lífi afreksíþróttamanns

08.11.2019

Hvernig er dagur í lífi afreksíþróttamanns? Kári Gunnarsson, margfaldur Íslandsmeistari í badminton, stefnir á þátttöku á Ólympíuleikunum í Tókýó í Japan í júlí 2020. Hann ætlar að taka yfir Instagram Story á síðu ÍSÍ @isiiceland í dag og leyfa okkur hinum að fylgjast með degi í sínu lífi.

Íslenskt íþróttafólk ætlar vikulega að skiptast á að taka við Instagram síðu ÍSÍ og sýna okkur hinum hvernig dagur í lífi íþróttafólks er með því að hlaða inn myndum og myndböndum á Instagram Story.

ÍSÍ hvetur þig til þess að fylgja Instagram síðu ÍSÍ sem sjá má hér og fylgjast með þínum uppáhalds fyrirmyndum í íþróttum takast á við hversdagslífið.

 

Myndir með frétt