Heiðrun á afmæli Knattspyrnufélagsins Þróttar
16.09.2019
Knattspyrnufélagið Þróttur fagnaði 70 ára afmæli félagsins með afmælishátíð í Laugardalshöll laugardaginn 7. september sl. Þar komu Þróttarar saman og fögnuðu góðu starfi félagsins í gegnum árin. Við það tækifæri sæmdi ÍSÍ Sigurð Sveinbjörnsson Gullmerki ÍSÍ fyrir góð störf í þágu íþróttahreyfingarinnar. Það var Viðar Garðarsson stjórnarmeðlimur ÍSÍ sem afhenti Sigurði viðurkenninguna.