Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

22.03.2026 - 22.03.2026

Ársþing HHF 2026

Ársþing Héraðssambandsins Hrafna-Flóka (HHF)...
25.03.2026 - 25.03.2026

Ársþing LSÍ 2026

Ársþing Lyftingasambands Íslands (LSÍ) verður...
25.03.2026 - 25.03.2026

Ársþing KÍ 2026

Ársþing Klifursambands Íslands (KÍ) verður...
19

Minsk 2019 - Skeet keppnin hélt áfram í dag

27.06.2019
Í dag var seinni dagurinn í leirdúfuskotfimi, eða skeet, á Evrópuleikunum í Minsk.
Hákon Þór Svavarsson skaut 42 af þeim 50 sem voru í boði, eða 20 og 22 stig. Lauk Hákon því keppni með 109 af 125 stigum og varð í 26. sæti af 29 keppendum.
 
Sex efst fóru áfram í úrslit og voru þeir að skora 121 og 122 stig í undankeppninni. Sigurvegari varð Stefan Nilsson frá Svíþjóð og vann hann sér í leiðinni kvótapláss á Ólympíuleikana í Tókýó 2020.

Myndir með frétt