Hörður sæmdur Gullmerki ÍSÍ
Ársþing Sundsambands Íslands fór fram þann 15. júní sl. í Íþróttamiðstöðinni í Laugardalnum. Kjörinn var nýr formaður en Björn Sigurðsson, ÍBH og fyrrum gjaldkeri stjórnar SSÍ tekur við af Herði J. Oddfríðarsyni, ÍBR. Hörður hefur verið formaður í 13 ár en fyrir það var hann varaformaður SSÍ í þrjú ár og stjórnarmaður í þrjú ár þar á undan. Hann sagði af sér embætti á þinginu en hann var kjörinn formaður til fjögurra ára á þingi SSÍ 2017. Hann heldur þó áfram sem meðstjórnandi til tveggja ára í stjórn SSÍ. Líney Rut Halldórsdóttir framkvæmdastjóri ÍSÍ ávarpaði þingið og nýtti tækifærið til þess að afhenda Herði Gullmerki ÍSÍ fyrir framúrskarandi störf í þágu íþróttahreyfingarinnar. Hannes Sigurbjörn Jónsson formaður KKÍ og Sólveig Jónsdóttir framkvæmdastjóri FSÍ voru þingforsetar.
Nýkjörin stjórn er eftirfarandi:
Formaður til tveggja ára (2021)
Björn Sigurðsson ÍBH
4 meðstjórnendur til fjögurra ára (2023)
Bjarney Guðbjörnsdóttir ÍA
Elsa María Guðmundsdóttir ÍBA
Júlía Þorvaldsdóttir ÍBR
Oddur Örnólfsson ÍBR
2 meðstjórnendur til tveggja ára (2021)
Hörður J. Oddfríðarson ÍBR
Viktoría Gísladóttir UMSK
2 í varastjórn til tveggja ára (2021)
Hrafnhildur Lúthersdóttir ÍBH
Leifur Guðni Grétarsson ÍA
2 félagslegir skoðunarmenn reikninga til tveggja ára (2021)
Júlíus Guðnason ÍA
Lóa Birna Birgisdóttir ÍBR
Mikil eindrægni ríkti á þinginu sem var starfsamt en allar tillögur sem lagðar voru fram á þinginu voru samþykktar einhljóða.