Sigur og tap hjá körfuknattleiksliðunum
Íslenska kvennalandsliðið í körfuknattleik lagði Möltu í dag, í sínum fyrsta leik á Smáþjóðaleikunum, 61:35. Íslensku stúlkurnar spiluðu vel og var góð stemmning í hópnum. Þóra Kristín Jónsdóttir og Hallveig Jónsdóttir skoruðu 11 stig hvor og voru stigahæstar í íslenska liðinu. Helena Sverrisdóttir skoraði 10 stig og þær Hildur Björg Kjartansdóttir og Sara Rún Hinriksdóttir 8 stig hvor.
Karlalandsliðið tapaði gegn Lúxemborg með tíu stigum, 77:67, í sínum fyrsta leik á Smáþjóðaleikunum. Íslenska liðið var með forystuna mestan hluta leiksins en gaf aðeins eftir í síðasta leikhlutanum sem var æsispennandi fram á síðustu mínútu. Elvar Már Friðriksson var stigahæstur í íslenska liðinu með 16 stig og gaf 6 stoðsendingar. Gunnar Ólafsson kom næstur með 13 stig og Kristinn Pálsson skoraði 9 stig.
Á morgun leika karlarnir gegn Möltu kl.15:30 (13:30 að íslenskum tíma) og konurnar kl.17:45 gegn heimastúlkum í Svartfjallalandi (15:45 að íslenskum tíma).