Nýjar ÍSÍ fréttir
02.04.2019
Í dag kemur út nýtt blað af ÍSÍ fréttum. Í blaðinu er farið yfir starf ÍSÍ síðastliðinna vikna. Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ á 30. ára afmæli á árinu og má sjá myndir frá hlaupinu síðan árið 1994. Fjölmörg ársþing sérsambanda og íþróttahéraða ÍSÍ hafa farið fram nýlega og sjá má þær heiðranir á vegum ÍSÍ sem fóru fram á þingum í mars. Farið er yfir næstu verkefni Afreks- og Ólympíusviðs ÍSÍ og ýmislegt fleira.
Rafrænu útgáfu blaðsins má sjá hér á Issuu-síðu ÍSÍ og einnig lesa hér fyrir neðan.