Sarajevo 2019 - Fimmta og síðasta keppnisdegi lokið
Þá er fimmta og síðasta keppnisdegi lokið á Vetrarólympíuhátíð Evrópuæskunnar í Sarajevó og Austur Sarajevó. Einu Íslendingarnir sem tóku þátt í dag voru skíðagöngukrakkarnir. Í dag var keppt í blandaðri boðgöngu 4x5km. Íslensku keppendurnir enduðu í 18. sæti af þeim 24 sem tóku þátt á tímanum 1:11.49,6. Sigurvegarar í greininni urðu Norðmenn á tímanum 1:02.01,4. Heildarúrslit keppninnar má finna hér.
Í lok dags fór svo fram lokaathöfn leikanna í Austur-Sarajevó. Verðlaun voru veitt þeim sem hlutu verðlaun á síðasta keppnisdeginum. Í lok dagskrár var gestgjöfum næstu leika afhentur fáni leikanna. Leikarnir árið 2021 fara fram í Voukatti í Finnlandi.
Íslenski hópurinn heldur heim á leið strax í fyrramálið.
Vefsíða leikanna
Facebook síða leikanna
#eyof2019 #sarajevo #eastsarajevo