Fjórði keppnisdagur í Sarajevo - Dagskrá
14.02.2019
Í dag er fjórði keppnisdagurinn á Vetrarólympíuhátíð Evrópuæskunnar í Sarajevo og Austur-Sarajevo. Fjórir íslenskir strákar keppa á snjóbretti (big air); Baldur Vilhelmsson, Birkir Þór Arason, Bjarki Arnarsson og Kolbeinn Þór Finnsson. Andri Gunnar Axelsson og Aron Máni Sverrisson keppa í svigi. Marta María Jóhannsdóttir keppir á listskautum (frjálsar æfingar). Egill Bjarni Gíslason, Jakob Daníelsson, Kolfinna Íris Rúnarsdóttir og Fanney Rún Stefánsdóttir keppa öll í sprettgöngu.
Öll úrslit má sjá hér á vefsíðu EYOF 2019.
Hægt er að fylgjast með íslenskum þátttakendum á hátíðinni í gegnum miðla ÍSÍ:
Vefsíða ÍSÍ
Facebook ÍSÍ
Instagram ÍSÍ
SnapChat ÍSÍ (á meðan á hátíðinni stendur): isiiceland
#eyof2019 #sarajevo #eastsarajevo