Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

22.03.2026 - 22.03.2026

Ársþing HHF 2026

Ársþing Héraðssambandsins Hrafna-Flóka (HHF)...
25.03.2026 - 25.03.2026

Ársþing LSÍ 2026

Ársþing Lyftingasambands Íslands (LSÍ) verður...
25.03.2026 - 25.03.2026

Ársþing KÍ 2026

Ársþing Klifursambands Íslands (KÍ) verður...
15

Súpufundur - Almenn fræðsla og reynslusögur um heilahristing

05.02.2019

Á morgun fer fram súpufundur á 3. hæð í höfuðstöðvum KSÍ á Laugardalsvelli frá 12:00-13:00 þar sem viðfangsefnið er höfuðhögg/heilahristingur í íþróttum. ÍSÍ og KSÍ standa fyrir fundinum. Þar mun Lára Ósk Eggertsdóttir Classens sem er læknir á bráðamóttöku halda fyrirlestur og Ragna Margrét Brynjarsdóttir, mastersnemi í sálfræði og María Björnsdóttir sjúkraþjálfari segja reynslusögur, en þær eru báðar körfuboltakonur sem fengu heilahristing í fyrra. Frítt er á viðburðinn og boðið verður upp á súpu og brauð.

Viðburðurinn veitir 2 endurmenntunarstig til þeirra þjálfara sem eru með UEFA/KSÍ A eða UEFA/KSÍ B þjálfararéttindi.

Sýnt verður beint frá fyrirlestrinum á miðlum KSÍ.

Skráning á viðburðinn er hér.