Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

05.12.2024 - 05.12.2024

Fundur

Fundur verður haldinn í framkvæmdastjórn ÍSÍ...
22

Hreinn í Heiðurshöll ÍSÍ

29.12.2018

Í kvöld, þann 29. desember, á hófi Íþróttamanns ársins, var Hreinn Halldórsson útnefndur í Heiðurshöll ÍSÍ. Hreinn er átjándi einstaklingurinn sem ÍSÍ útnefnir í höllina.

Hreinn Halldórsson er fæddur árið 1949 og hóf fljótlega að leggja stund á kúluvarp. Árangur hans vakti snemma athygli og gaf Ómar Ragnarsson honum viðurnefnið, „Strandamaðurinn sterki“ en það viðurnefni átti eftir að festast við Hrein. Árið 1976 var Hreinn kjörinn Íþróttamaður ársins í fyrsta sinn, en það ár bætti hann Íslandsmetið í kúluvarpi og keppti á Ólympíuleikunum í Montreal. Hann hlaut þá 79 stig af 80 mögulegum í kjörinu á Íþróttamanni ársins. Árið 1977 vann Hreinn sitt fræknasta afrek þegar hann varð Evrópumeistari innanhúss í San Sebastian á Spáni. Þar kastaði hann kúlunni 20,59 metra og skákaði meðal annars Geoff Capes, margföldum Evrópumeistara og Vladislaw Komar, pólska Ólympíumeistaranum frá 1972. Hreinn varð um leið fyrsti Íslendingurinn til að verða Evrópumeistari í frjálsíþróttum í 27 ár. Sama ár bætti Hreinn Íslandsmetið í kúluvarpi þegar hann kastaði 21,09 metra á móti í Stokkhólmi, met sem stóð í þréttán ár. Hreinn var vitaskuld valinn Íþróttamaður ársins 1977 og hlaut nafnbótina í þriðja sinn árið 1979. Það ár átti hann sjötta besta afrek í heiminum þegar hann varpaði kúlunni 20,69 metra. Á Ólympíuleikunum í Moskvu árið 1980 hafnaði Hreinn í 10. sæti. Hreinn lagði kúluna á hilluna árið 1982. Hreinn var um tíma einn þekktasti strætisvagnastjóri Reykjavíkur en hefur síðustu áratugi verið búsettur á Egilsstöðum þar sem hann hefur haft umsjón með íþróttamannvirkjum á Egilsstöðum og í Fellabæ.

Það er ÍSÍ mikill heiður að útnefna Hrein Halldórsson í Heiðurshöll ÍSÍ.

Hreinn Halldórsson - Heiðurshöll ÍSÍ

Myndasíða ÍSÍ - Hreinn Halldórsson