Næsta fjarnám í Þjálfaramenntun ÍSÍ
Menntakerfi ÍSÍ fyrir íþróttaþjálfara hefur verið til í fjölda ára og ásókn í námið hefur verið mikil. ÍSÍ heldur utan um þann hluta námsins sem gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar og sérgreinaþátturinn er svo á herðum sérsambanda ÍSÍ. Nemendur eru mjög ánægðir með námið og telja það frábæran kost til að styrkja þekkingu þeirra og hæfni sem þjálfara á hinum ýmsu aldursstigum. Hér að neðan eru dæmi um ummæli nemenda um námið og skipulag þess:
„Fjölbreytt námsefni og skýr markmið varðandi það sem tekið er fyrir í hverri viku. Mjög áhugavert námsefni og fróðlegt.“
„Skipulagið er gott, bæði hvað námið varðar og uppsetningu kennsluvefs. Efnið áhugavert og vel sett fram. Sveigjanleiki með verkefnaskil, sem er gott fyrir vinnandi fjölskyldufólk o.s.frv.“
„Mjög gott og skýrt námsefni og mikill stuðningur leiðbeinanda.“
„Verkefnin voru fjölbreytt, reyndu á mismunandi þætti og létu mann skoða hluti frá mismunandi sjónarhornum.“
Nánar má lesa um þjálfaramenntun ÍSÍ hér.
Næsta fjarnám í þjálfaramenntun verður á vorönn 2019 og hefst um mánaðamótin janúar/febrúar og tekur það átta vikur á 1. stigi en fimm vikur á 2. stigi. Nám beggja stiga er allt í fjarnámi, engar staðbundnar lotur og gildir námið jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Skráning er rafræn. Rétt til þátttöku á 1. stigi hafa allir sem lokið hafa grunnskólaprófi. Til þátttöku á 2. stigi þarf að hafa lokið 1. stigi, hafa gilt skyndihjálparnámskeið og 6 mánaða starfsreynslu sem þjálfari.
Allar frekari upplýsingar um Þjálfaramenntun ÍSÍ eru fúslega veittar hjá Viðari Sigurjónssyni á vidar@isi.is eða í síma 514-4000 & 863-1399.