Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

15.03.2025 - 15.03.2025

Ársþing KKÍ 2025

Ársþing Körfuknattleikssambands Íslands (KKÍ)...
13

Sýnum karakter - myndbönd frá ráðstefnum

17.10.2018

Mörg áhugaverð og fræðandi myndbönd má sjá á Youtube-síðu Sýnum karakter. Þar má meðal annars sjá upptökur af tveimur ráðstefnum sem haldnar voru í tengslum við verkefnið Sýnum karakter þar sem þjálfarar, afreksíþróttafólk og fleiri deila sinni reynslu úr íþróttaheiminum. 

Sýnum karakter er samstarfsverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands og Ungmennafélags Íslands (UMFÍ). Sýnum karakter fjallar um þjálfun sálrænnar og félagslegrar færni barna og ungmenna í íþróttum. Hugmyndafræði verkefnisins byggir á að hægt sé að þjálfa og styrkja sálræna og félagslega færni iðkenda eins og líkamlega færni.

Vefsíða Sýnum karakter er synumkarakter.is og verkefnið er einnig með facebook-síðu undir nafninu Sýnum karakter.