YOG:Sjötti keppnisdagur
12.10.2018
Þá er keppni lokið hjá okkar fólki þennan daginn á Ólympíuleikum ungmenna í Buenos Aires.
Brynjólfur Óli Karlsson keppti í 200m baksundi. Synti hann á tímanum 2:11,33. Brynjólfur varð í 24. sæti keppenda. Með því hafa allir keppendur okkar í sundi lokið keppni á mótinu.
Elísabet Rut Rúnarsdóttir gerði því miður öll köst sín ógild í sleggjukastkeppninni. Seinni umferð sleggjukastkeppninnar verður á mánudaginn.
Á morgun laugardag hefst keppni í blönduðum liðum í golfi þar sem Hulda Clara Gestsdóttir og Ingvar Andri Magnússon taka þátt auk þess sem Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir keppir í fyrri umferð 200m hlaups.