Námskeið í Ólympíu
19.06.2018
Dagana 17. júní – 1. júlí fer fram námskeið fyrir unga þátttakendur í Ólympíu í Grikklandi. Tveir þátttakendur taka þátt fyrir hönd ÍSÍ en þau eru Dominiqua Alma Belányi og Benedikt Jónsson en þau voru valin úr hópi umsækjenda. Námskeiðið stendur yfir í tvær vikur og er aðal umfjöllunarefnið að þessu sinni íþróttamaðurinn sem fyrirmynd.
Námskeiðið er byggt á fyrirlestrum og umræðuhópum, en einnig er mikil áhersla lögð á að fulltrúar þjóðanna kynnist, t.d. með þátttöku í íþróttum, á meðan á dvölinni stendur.
Vefsíða Alþjóðaólympíuakademíunnar (IOA).