Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

05.12.2024 - 05.12.2024

Fundur

Fundur verður haldinn í framkvæmdastjórn ÍSÍ...
22

Laus störf hjá ÍSÍ

26.05.2018

 

Verkefnastjóri á Afreks- og Ólympíusviði ÍSÍ

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands óskar eftir að ráða verkefnastjóra á Afreks- og Ólympíusvið ÍSÍ. Næsti yfirmaður er sviðsstjóri Afreks- og Ólympíusviðs ÍSÍ.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
  • Góðir samskiptahæfileikar.
  • Góð íslenskukunnátta í máli og riti.
  • Góð kunnátta í ensku og einu Norðurlandamáli.
  • Aukin tungumálakunnátta kostur (franska, þýska).
  • Mjög góð tölvukunnátta.
  • Sjálfstæð vinnubrögð.
  • Að viðkomandi sé talnaglöggur er mikill kostur.
  • Umsækjendur þurfa að geta hafið störf sem fyrst.

 

Verkefnastjóri á Almenningsíþróttasviði ÍSÍ

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands óskar eftir að ráða verkefnastjóra á Almenningsíþróttasvið ÍSÍ. Næsti yfirmaður er sviðsstjóri Almennings-íþróttasviðs ÍSÍ.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Menntun og/eða starfsreynsla sem nýst getur í starfi.
  • Góðir samskiptahæfileikar.
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
  • Góð kunnátta í ensku og einu Norðurlandamáli.
  • Mjög góð tölvukunnátta og þekking á samfélagsmiðlum.
  • Mikill áhugi á heilsueflingu og hreyfingu.
  • Umsækjendur þurfa að geta hafið störf sem fyrst.

 

Umsóknum skal skilað á netfangið isi@isi.is eða á skrifstofu ÍSÍ, Íþróttamiðstöðinni í Laugardal, 104 Reykjavík. Umsóknarfrestur er til og með 4. júní 2018.

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands er æðsti aðili hinnar frjálsu íþróttastarfsemi á Íslandi með um 180.000 félagsmenn og 100.000 iðkendur. Hátt í 1.300 starfseiningar eru innan ÍSÍ, þ.e. 32 sérsambönd, 25 íþróttahéruð, 450 íþrótta- og ungmennafélög og rúmlega 800 deildir þeirra. Starfsemi ÍSÍ skiptist í þrjú svið; Almenningsíþróttasvið, Afreks- og Ólympíusvið og Þróunar- og fræðslusvið.
ÍSÍ er aðili að Alþjóðaólympíunefndinni (IOC).