Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

05.12.2024 - 05.12.2024

Fundur

Fundur verður haldinn í framkvæmdastjórn ÍSÍ...
22

PyeongChang 2018 - Ólympíufarar leggja af stað

01.02.2018

Vetrarólympíuleikarnir fara fram í PyeongChang í Suður- Kóreu 9. - 25. febrúar 2018. Verður það í annað sinn sem Suður-Kórea heldur Ólympíuleika, en Sumarólympíuleikarnir 1988 fóru fram í Seoul. Hluti af íslenskum þátttakendum lagði af stað til PyeongChang frá Íslandi í morgun. Á myndinni má sjá Egil Inga Jónsson þjálfara í alpagreinum, Jón Viðar Þorvaldsson flokksstjóra, Elsu Guðrúnu Jónsdóttur keppanda í skíðagöngu kvenna og Maríu Magnúsdóttur sjúkraþjálfara.
Eftirtaldir keppendur verða fulltrúar Íslands á leikunum:

• Freydís Halla Einarsdóttir, alpagreinar kvenna – svig og stórsvig
• Sturla Snær Snorrason, alpagreinar karla – svig og stórsvig
• Elsa Guðrún Jónsdóttir, skíðaganga kvenna – sprettganga og/eða 10 km F (frjáls aðferð)
• Snorri Einarsson, skíðaganga karla – sprettganga, 15km F (frjáls aðferð), 30km skiptiganga, 50km C Mst (fjöldastart, hefðbundin aðferð)
• Isak Stianson Pedersen, skíðaganga karla – sprettganga og/eða 15km ganga F (frjáls aðferð)

Vetrarólympíuleikarnir verða settir föstudagskvöldið 9. febrúar nk. kl. 20:00 að staðartíma, en kl. 11:00 á íslenskum tíma. Verður setningarhátíðin sýnd í beinni útsendingu hjá RÚV. Lokahátíðin fer fram sunnudagskvöldið 25. febrúar nk. og hefst einnig kl. 20:00 að staðartíma.

Hægt er að fylgjast með þátttöku Íslands á leikunum á vefsíðu ÍSÍ hér.

Hér má sjá vefsíðu leikanna.

Hér má sjá Facebook-síðu leikanna.

Myndir með frétt