17 afreksíþróttamenn í Heiðurshöll ÍSÍ
Heiðurshöll ÍSÍ er óáþreifanleg höll afreksíþróttafólks og afreksþjálfara Íslands, í ætt við Hall of Fame á erlendri grundu. Á hófi Íþróttamanns ársins 2017, þann 28. desember sl., var Skúli Óskarsson kraftlyftingamaður frá Fáskrúðsfirði og fyrrverandi heimsmethafi, útnefndur í Heiðurshöll ÍSÍ. Skúli er sautjándi einstaklingurinn sem ÍSÍ útnefnir í höllina og má sjá vefsíðu hans í Heiðurshöll ÍSÍ hér.
Framkvæmdastjórn ÍSÍ útnefnir einstaklinga í Heiðurshöll ÍSÍ eftir reglugerð þar að lútandi og er Heiðursráð ÍSÍ ráðgefandi aðili varðandi tilnefningar. Með þessu verkefni vill ÍSÍ skapa vettvang til að setja á frekari stall okkar framúrskarandi fólk og skapa minningar í máli og myndum af þeirra helstu afrekum.
Hér má sjá síðu Heiðurshallar ÍSÍ.
Hér má sjá myndasíðu Heiðurshallar ÍSÍ.