Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

16.05.2024 - 16.05.2024

Ársþing FSÍ 2024

Ársþing Fimleikasambands Íslands (FSÍ) verður...
16

Glímufélagið Ármann til fyrirmyndar

11.12.2017

Glímufélagið Ármann fékk endurnýjun viðurkenninga fyrir allar sínar deildir sem fyrirmyndardeildir ÍSÍ sunnudaginn 10. des. sl. á afmælishátíð félagsins í hátíðarsal Laugarbóls í Laugardal.

Það var Þráinn Hafsteinsson úr framkvæmdastjórn ÍSÍ og formaður Þróunar- og fræðslusviðs sem afhenti forystumönnum félagsins viðurkenningarnar. Alls eru 10 deildir innan Ármanns og þar sem allar deildirnar hafa þessa gæðavottun ÍSÍ er félagið í heild sinni fyrirmyndarfélag ÍSÍ.

Á myndinni er Þráinn Hafsteinsson lengst til hægri ásamt forystumönnum aðalstjórnar og deilda.