Formannafundur ÍSÍ 2017 í dag
17.11.2017
Formannafundur ÍSÍ verður haldinn í Laugardalshöllinni í dag kl. 15:30. Þar koma saman til fundar formenn og framkvæmdastjórar sérsambanda og íþróttahéraða ÍSÍ ásamt framkvæmdastjórn og starfsfólki ÍSÍ. Formannafundur er ráðgefandi samkoma og er heimilt að álykta um málefni tengd starfsemi ÍSÍ og skulu þær ályktanir vera í samræmi við lög og stefnu sambandsins.