Stjórn UMSE auglýsir eftir framkvæmdastjóra
27.09.2017Ungmennasamband Eyjafjarðar óskar eftir að ráða framkvæmdastjóra í 50% starf.
UMSE er samband 13 íþrótta- og ungmennafélaga í Eyjafirði. Sambandið vinnur að hagsmunamálum aðildarfélaganna og veitir þeim ráðgjöf og þjónustu.
Helstu verkefni framkvæmdastjóra eru:
•	Vinnur samkvæmt samþykktum stjórnar UMSE.
•	Samskipti hagsmunaaðila.
•	Öll almenn störf á skrifstofu.
•	Gerð fjárhagsáætlana og verkefnaáætlana.
•	Undirbúningur funda er varða málefni UMSE.
•	Yfirumsjón með allri útgáfu.
•	Umsjón með vefsíðum og samfélagsmiðlum.
•	Önnur verkefni sem stjórn UMSE felur viðkomandi.
Hæfniskröfur og eiginleikar:
•	Menntun og reynsla sem nýtist í starfi.
•	Lipurð í samskiptum.
•	Góðir leiðtogahæfileikar.
•	Gott vald á íslensku í ræðu og riti.
•	Góð almenn tölvukunnátta.
Umsóknarfrestur er til og með 8. október 2017. Umsóknum skal skilað í tölvupósti á umse@umse.is
Nánari upplýsingar gefur Bjarnveig Ingvadóttir, formaður, 
í síma 862 6896 og tölvupósti bjarnveigi@simnet.is