Sunddeild Fjölnis fyrirmyndardeild ÍSÍ
![](/library/Myndir/Fraedslusvid/Fyrirmyndarverkefni/20170913_191807.jpg?proc=400x400)
Sunddeild Fjölnis í Grafarvogi fékk endurnýjun viðurkenningar deildarinnar sem fyrirmyndardeild ÍSÍ á foreldrafundi í Pálsstofu á 2. hæð Laugardalslaugar miðvikudaginn 13. september síðastliðinn. Það var Sigríður Jónsdóttir varaforseti ÍSÍ sem afhenti forystumönnum deildarinnar viðurkenninguna.
Á myndinni eru frá vinstri; Elfa Yngvadóttir þjálfari í Grafarvogslaug, Hjördís Guðný Guðmundsdóttir formaður sunddeildarinnar ásamt syni sínum Hilmari Höskuldssyni, Sigríður Jónsdóttir og Ragnar Friðbjarnarson yfirþjálfari.